
Á morgun ætla ég að gefa út plötu á plötufyrirtækinu okkar World Champion Records og í samstarfi við Kimi Records, sem ætla að dreifa þessu fyrir mig.
"hoop" (3:57)Platan heitir "lettuce & tomato" og gerði ég hana með Hungry and the Burger hattinum. Þegar við fluttum til útlanda tók ég ekki með mér nein hljóðfæri og þess vegha þurfti ég að nota það sem ég komst í. Úr því varð þessi hugmynd að gera lög með þeim hljóðfærum sem ég kemst í hverju sinni. Til dæmis fengum við gesti til okkar sem dvöldu hjá okkur í nokkra daga og með þeim komu bassi, melódikka og eitthvað annað skemmtilegt. En mér tókst að skella saman einu lagi með þessum hljóðfærum og úr varð lagið "ANTANT" svo notaði ég myndavélina til að taka upp djúkbox sem spilaði rispaða plötu í lúppu fyrir lagið "Cowboybox". Öll önnur lög á plötunni eru gerð með Akai riff-o-matic og Groovy tunes grand piano.
Þetta er fyrsta sóló platan sem ég gef út og er ég því afar spenntur fyrir þessu eins og sést á myndinni hér fyrir ofan.
Plötuna má svo nálgast í öllum helztu verzlunum hér í miðbænum (Smekkleysu og Útúrdúr)
Ég lauma hérna með einu lagi sem er ekki á plötunni en verður á næstu.
