Nýfermt tölvunörd

| | Comments (1)


Ég og Lóa fluttum í nýja íbúð nýlega og höfum verið að koma okkur fyrir en vantar þó enþá nokkra hluti. Þeirra á meðal er DVD spilari og því hef ég verið mjög duglegur við að finna mér sjónvarpsefni á netinu í stað þess að horfa endalaust á sömu 3 DVD myndirnar sem ég á. Í þessari leit minni rakst ég á mjög merkilega þætti sem kallast Computer Chronicles, þættirnir fjalla um þróun tölvu tæni og taka í hverjum þætti fyrir eitthvað sérstakt viðfangsefni, til dæmis er þáttur sem nefnist Lasers and Computers en sá þáttur fjallar um CD-ROM og LASERDISC. Svo er annar þáttur sem nefnist Commodore 64 og fjallar semsagt um Commodore 64 tölvur

Það sem er sérstakt við þessa þætti er að þeir eru frá árunum 1983 til 2002 en skemtilegustu þættirnir að mínu mati eru frá árumun 1983 til 1990.

Stjórnandi þáttanna er maður að nafni Stewart Cheifet en meðstjórnandi þáttana er Gary Kildall, maðurinn sem bjó til CP/M sem varð svo til þess að MS-DOS varð til.

Þættina er hægt að nálgast frítt á archive.org

1 Comments

É sjo spentur fyir sjessum sjáttum!

Leave a comment

About this Entry

This page contains a single entry by Plúseinn published on September 4, 2008 6:16 AM.

Gleyminn og svangur was the previous entry in this blog.

París í huganum is the next entry in this blog.

Find recent content on the main index or look in the archives to find all content.